Info
By nonniEr hjólið þitt ónothæft?
Lærðu að lagfæra það sjálfur eða gefðu það í góðan málstað!
Hjóla-samvinna (bike-collective) er hugtak sem oft er notað yfir hóp fólks sem hefur það markmið að aðstoða hjólreiðafólk við að gera við reiðhjólin sín og endurgera reiðhjól sem hafa endað á haugunum eða eru á leiðinni þangað. Oft eru þetta smávægilegar viðgerðir sem einfalt er að laga og koma þeim aftur í stand. Vinnustofan Keðjuverkun er rekin án gróðahugsjónar og allir innan hópsins leggja þann tíma sem þeir vilja í verkefnið.
Hópurinn samanstendur af fólki sem tekur að sér að sinna eftirfarandi hlutverkum:
1. Taka við hjólum á vinnustofunni og ákvarða örlög þeirra
2. Taka í sundur hjól og flokka í varahluti
3. Setja saman hjól úr varahlutum
4. Læra almenna viðgerð á hjólum (bremsur, gírar, slöngur, gjarðir)
5. Kenna áhugasömum almennar hjólaviðgerðir
6. Koma hjólum í hendur fólks sem hefur ekki tök á að kaupa sér ný reiðhjól.
7. Skipuleggja hjólaviðburði
8. Benda á möguleikann um bíllausan líffstíl
Þegar vinnustofan er opin getur fólk kíkt í heimsókn og gert við sín eigin hjól. Það hefur greiðan aðgang að þeim verkfærum sem eru á staðnum gegn því að virðing sé borið fyrir þeim og þau rétt meðhöndluð. Með þessum hætti skapast vettvangur fyrir fólk til að skiptast á hugmyndum og hjálpast að við hjólaviðgerðir.
Hverskyns mismunun vegna þjóðernis, uppruna, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, kynferðis, kyngerfis, aldurs eða fötlunar er allgjörlega hafnað. Upplýst ákvörðunartaka (consensus) er hornsteinn verkefnisins og allir sjálfboðaliðar taka virkan þátt í þeim ákvörðunum sem teknar eru varðandi þau mál sem tengjast verkefninu.
Fólk getur lagt frjáls framlög til Keðjuverkunar en þau verða eingöngu notuð til kaupa á verkfærum og nauðsynlegum varahlutum sem skortur er á hverju sinni. Keðjuverkun treysta á verkfæra-framlög fólks sem og biluðum hjólum sem hægt er að nota í varahluti.
Vinnustofan er á Skólavörðustíg (fyrir neðan Krambúðina) og það er opið eftir veðri. Þú getur sent okkur póst á info (hjá) kedjuverkun.org fyrir frekari upplýsingar.
Frábært framtak! Ég mun örugglega lita inn til ykkar fljótlega.
Draumur í dós, til hamingju með Keðjuverkunina!!! Er hægt að opna útibú á Akureyri?
Sæl Anetta.
Það er allt hægt. Við byrjuðum í fyrra með litla sem enga þekkingu á hjólaviðgerðum. Við fengum aðgang að kjallara og byrjuðum að auglýsa með veggspjöldum um allan bæ og með því að skrifa um okkur allsstaðar sem færi gafst, bæði á neti og í prentmiðlum. Fólk kom með hjól til okkar sem annars áttu að fara á hauganna og við vorum dugleg við að tala við fólk ef við sáum illa farin hjól í görðum fólks og létum svo orðið berast.
Ef þú opnar Keðjuverkun á Akureyri þá færðu allan okkar stuðning.
Nonni
Magnað! Kíki á ykkur fljótlega. Aldrei að vita nema maður geti eitthvað hjálpað til.