Verkstæðið
By nonniÁður en komið er á verkstæðið er mikilvægt að kunna skil á skipulaginu og hvernig best er að athafna sig þegar þangað er komið. Verkfæri eru mjög dýr og það er mjög auðvelt að fara illa með verkfæri með því að beita þeim rangt. Ef þú ert ekki viss um hvað þú ert að gera þá er best að spyrja fyrst. Keðjuverkun er fyrst og fremst vettvangur fyrir fólk til að læra að gera við reiðhjól.
Fólk kemur á verkstæðið af mismunandi ástæðum.
Ef þú ætlar:
- … að læra að gera við þitt reiðhjól
- … að skilja eftir ónýtt hjól
- … að fá varahluti í hjólið þitt
- … að fá lánað hjól
- … að smíða hjól frá grunni
… þá viljum við biðja þig að:
- … reyna að klára eitt verkefni á verkefnalistanum fyrst.
- … ganga frá því snyrtilega í móttökuna. Ef þú hefur tök á að fylla út vandamála lýsingu þá erum við með miða fyrir þig til að fylla út.
- … að greiða frjálst framlag í verkfæra-sjóð Keðjuverkunnar eða skipta við okkur á pörtum og greiða fyrir þá með verkfærum.
- … að smíða fyrst hjól sem er í eigu Keðjuverkunnar og síðan þitt eigið.
- … að greiða frjáls framlög í verkfæra-sjóðinn.
Okkur vantar alltaf aðstoð við ýmis verkefni og flest þeirra eru ekki tengd reiðhjólum. Á svæðinu er verkefnalisti sem gestir geta kíkt á og fundið eitthvað við sitt hæfi.